Elfar kom hlaupandi yfir sig æstur og sagði (hoppandi af spenningi): "Mamma, mamma, pabbi ætlar að setja seríu undir rúmið okkar!!!!"....... svo kom smá þögn áður en hann sagði hugsandi: "hvað er sería?" _____________________________________________________________________________________
Pabbi: "ég ætla bara að vera heima hjá ykkur og ekkert að fara í vinnuna í nokkra daga" Elfar: "Nú varstu rekinn út af kreppunni?" _________________________________________________________________________
Jæja takk fyrir afmæliskveðjuna til Emblu, það væri nú gaman að fara að hitta ykkur í eigin persónu!
Látið vita ef þið eruð á ferðinni fyrir vestan.
Kv Inga Magný,ELvar Þór,Embla Þórey og Tinna María
Elfar kemur til mömmu sinnar þar sem hún var að ganga frá þvotti og kvartar yfir hungri.
Elfar: "mamma ég er svangur" mamma: "já bíddu ég ætla að klára að ganga frá þvottinum hérna og svo gef ég þér að borða" Elfar eftir smástund: "Mamma ég er alveg að drepast úr hungri" Mamma: "bíddu aðeins ég er alveg að verða búin" Elfar eftir smá meira suð, hálfgrátandi: "mamma... hjartað mitt er alveg að hætta að slá" ______________________________________________________________________________________
Elfar (nývaknaður): "Við verðum að kenna Urði um gamla daga. Ég veit hvernig húsin í gamla daga voru búin til." mamma: "nú nú hvernig?" Elfar: "Þau voru búin til úr kúk" _____________________________________________________________
Elsku Fjölskylda, megi Guð gefa ykkur gleðileg jól og farsælt komandi ár;)
Hafið það sem allra best yfir hátíðirnar:)
Jólakveðja
*Jónbjörg* *Guðni* *Sindri Blær* *Bumbubúi* & *Sezar*